ÚTBOÐ - Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ” Heiðargerði – Gatnagerð og lagnir – Endurgerð götu ”.

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ” Heiðargerði – Gatnagerð og lagnir – Endurgerð götu ”.

Verkið er fólgið í endurgerð götunnar Heiðargerði í Vogum sem er íbúðagata í grónu og fullbyggðu hverfi. Um er að ræða; uppúrtekt í götu og fyrir lögnum, fyllingar í götustæði og yfir lagnir, söndun og lagningu lagna, tengja lagnir við núverandi lagnir, útlagning jöfnunarlags undir malbik, malbikun, steypa kantstein, helluleggja gangstétt og annað það sem kemur fram á uppdráttum, í verklýsingu og magnskrá.

Helstu magntölur eru u.þ.b:
Uppúrtekt       1200 m³
Fyllingar       1220 m³
Malbik          605 m²
Fráveitulagnir         118 m
Vatnslagnir           92 m

Verklok skulu vera eigi síðar en þremur mánuðum eftir að verk hefst skv. samþykktri verkáætlun, þó aldrei síðar en 30. september 2018.
 
Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.

Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 25. janúar 2018.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en miðvikudaginn 14. febrúar 2018, kl. 11:30 og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.