ÚTBOÐ

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ”Miðsvæði – Gatnagerð og lagnir –1. áfangi”

Verkið er fólgið í gatnagerð í nýju íbúðahverfi á Miðsvæði í Vogum; uppúrtekt fyrir götum og lögnum, fyllingar í götustæði og yfir lagnir, söndun og lagningu lagna, leggja lagnir vegna götulýsingar, reisingu ljósataura, útlagning jöfnunarlags undir malbik, malbikun, tengja lagnir við núverandi lagnir og annað það sem kemur fram á uppdráttum, í verklýsingu og magnskrá.

Helstu magntölur eru u.þ.b:
Uppúrtekt       2000 m³
Fyllingar       3800 m³
Malbik        2400 m²
Fráveitulagnir         800 m
Vatnslagnir         440 m

Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2017.
 
Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.

Útboðsgögn verða afhent frá og með mánudeginum 20. mars 2017.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en þriðjudaginn 4. apríl 2017, kl. 11:00 og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.