Úr sveit í bæ.

Vatnsleysustrandarhreppur verður Sveitarfélagið Vogar

Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun hreppsnefndar Vatnsleysustrandarhrepps um breytingu á nafni sveitarfélagsins. Framvegis ber sveitarfélagið nafnið Sveitarfélagið Vogar.

 

Jafnframt hefur ráðuneytið staðfest nýja samþykkt um stjórn og fundarsköp fyrir Sveitarfélagið Voga, en samkvæmt henni mun hreppsnefnd framvegis nefnast bæjarstjórn og sveitarstjóri fá titilinn bæjarstjóri. Auk þess mun fulltrúum í sveitarstjórn fjölga úr fimm í sjö frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum sem fara fram þann 27. maí næstkomandi.

Frá gildistöku breytingarinnar mun einnig verða starfandi bæjarráð í sveitarfélaginu, sem bæjarstjórn kýs.

 

 

 

Í Sveitarfélaginu Vogum eru nú 1.018 íbúar, en íbúum í sveitarfélaginu hefur fjölgað um rúm 40% síðastliðin 7 ár.