Upplýsingamiðstöð ferðamála hefur verið opnuð í gestastofu Reykjanes jarðvangs, Bryggjuhúsi Duus safnahúss

Upplýsingamiðstöðin er landshlutamiðstöð og þjónar því okkar heimasvæði. Áhersla verður lögð á að veita ferðamönnum haldgóðar upplýsingar um hvað hægt sé að sjá, gera og upplifa á svæðinu. Fljótlega getum við svo farið að sinna bókunarþjónustu fyrir gesti okkar.
Um leið og við kynnum okkur til leiks viljum við benda ferðaþjónum á að allar upplýsingar sem þeir vilja koma á framfæri eru vel þegnar og allra hagur að kíkja inn, kynna sig og kynnast okkur.

Kveðja,
Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir Verkefnastjóri á sviði ferðamála hjá Reykjanesbæ.

Upplýsingamiðstöð ferðamála á Reykjanesi (pdf)