Uppbygging hýsingarmiðstöðvar hefst í Vogum í sumar

Í dag var skrifað undir viljayfirlýsingu milli Midgard hf og Sveitarfélagsins Voga um byggingu tölvuhýsingarmiðstöðvar í Vogum.  Gert er ráð fyrir að byggja 11 hýsingareiningar á næstu árum auk þjónustubyggingar, samtals um 6.000 m2.  Fyrsti áfangi verður tekinn í notkun fyrir lok ársins 2010.   Hýsingarmiðstöðin verður byggð í samræmi við alþjóðlegar kröfur og mun m.a. nýta  græna orku landsins, kalt vatnið og stöðugt loftslag.

Um 5 milljarða fjárfesting
Verkefnið hefur verið í undirbúningi frá því í byrjun árs 2007 og er fjármögnun fyrsta áfanga nú lokið.  Gert er  ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í sumar .

Fjárfesting vegna uppbyggingar í  Vogum verður um  5 milljarðar króna gangi áætlanir eftir.  Gert er ráð fyrir að um 25-30 tæknimenntaðir starfsmenn muni starfa beint við fullbyggða hýsingarmiðstöðina,  en margfeldisáhrif vegna starfa á Íslandi gætu orðið mjög mikil.   

Hýsingarmiðstöðin mun fá orku frá HS Orku á Suðurnesjum.  Gert er ráð fyrir að orkunotkun muni aukast jafnt og þétt á næstu árum og að fullbyggð muni hýsingarmiðstöðin í Vogum þurfa um  10-12 MW.

Viðskiptasamningar við innlenda og erlenda aðila liggja fyrir
Nú þegar er búið að ganga frá viðskiptasamningum sem munu tryggja rekstur fyrsta áfanga hýsingarmiðstöðvarinnar strax frá upphafi.  Meðal þeirra fyrirtækja sem munu nýta sér þjónustu Midgard frá byrjun eru Orange Business Services og Basis ehf.   

Orange Business Services (OBS) er hluti af France Telecom sem er eitt af stærstu fjarskiptafélögum í heiminum með um 192 milljónir viðskiptavina.   OBS veitir alþjóðlegum fyrirtækjum um heim allan þjónustu á sviði gagnatenginga og alhliða tölvuþjónustu .   Gagnanet OBS nær yfir 220 lönd og er OBS með formlega starfssemi í 166 löndum í fjórum heimsálfum.   OBS er leiðandi á sínu sviði í heiminum og hjá félaginu eru um 30.000 starfsmenn.

Basis er  þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Hjá fyrirtækinu starfa margir af færustu sérfræðingum landsins á sviði hýsingar og reksturs upplýsingatæknikerfa og ráðgjafar þeim tengdum.  Meginmarkmið Basis er að bjóða viðskiptavinum sínum upp á öflugar lausnir sem uppfylla ströngustu kröfur um öruggan og áreiðanlegan rekstur upplýsingatæknikerfa

Vogar eru frábærlega staðsettir fyrir þessa starfsemi
„Í dag er stigið mikilvægt skref í atvinnuuppbyggingu í Vogum sem miðar að aukinni fjölbreytni starfa. Hýsingarmiðstöð Miðgarðs verður  hryggjarstykkið í aukinni starfsemi í tækni og upplýsingaþjónustu í sveitarfélaginu til framtíðar, en fyrir er félag í Vogum á sviði upplýsingatækni sem hefur margfaldast að umfangi undanfarin ár. Við teljum því sóknartækifærin liggja í þessum geira.

Vogar eru frábærlega staðsettir fyrir starfsemi sem þessa, en um sveitarfélagið liggja 3 ljósleiðarar og aðgengi að orku er gott. Auk þess eru samgöngur eins og best verður á kosið og nálægðin við höfuðborgarsvæðið og alþjóðaflugvöllinn skipta sköpum“. Segir Hörður Harðarson formaður bæjarráðs.

Orange Business Services með tengipunkt í Midgard
„Orange Business Services mun vera með öflugan tengipunkt í hýsingarmiðstöð Midgard strax í upphafi rekstrar og mun tengjast viðskipta-gagnaneti Orange Business Services, sem nær yfir 220 lönd og er stærsta sinnar tegundar í heiminum.  Með tilkomu svona sérhæfðrar hýsingarmiðstöðar mun skapast tækifæri fyrir aukinn vöxt og þjónustu Orange Business Services á Íslandi“.  Segir Örvar Sigurðsson framkvæmdastjóri Orange Business Services á Íslandi.

Ný og spennandi tækifæri fyrir Basis
„Hýsingarmiðstöðin mun skapa ný og spennandi tækifæri í rekstri Basis. Basis hefur fram til þessa boðið viðskiptavinum sínum upp á hýsingu tölvukerfa í sínum eigin sal en plássleysi var farið að standa í vegi fyrir stækkun fyrirtækisins og auknu framboði á þjónustu. Með hýsingu hjá Midgard verða stækkunarmöguleikar Basis hinsvegar nánast ótakmarkaðir auk þess sem rekstraröryggið verður enn meira en áður. Það er ljóst að tilkoma Midgard mun gera Basis kleift að einbeita sér enn betur að sinni kjarnastarfsemi sem er hýsing, rekstur og þjónusta við tölvukerfi“.  Segir Snorri Páll Jónsson framkvæmdastjóri Basis.

Á mynd: Hörður Harðarson, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga undirritar viljayfirlýsinguna ásamt Ægi Pálssyni og Jóni Ólafi Halldórssyni frá Miðgarði.