Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2015

Vertu til er vorið kallar á þig!

Vorið er komið og grundirnar gróa. Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga er sem fyrr haldin undir slagorðinu ,,Vertu til er vorið kallar á þig!”, en það vísar til þess að allir íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst þriðjudaginn 26. maí og endar þann 31. maí, þannig að það er rúmur tími til góðra verka.

• Hægt er að losa jarðveg og garðúrgang í jarðvegsgám við Iðndal 9.
• Ruslapokar sem skildir eru eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá þjónustu þurfa. Vinsamlegast gangið vel og snyrtilega frá pokum.(pokar með garðaúrgang)
• Íbúar á Vatnsleysuströnd eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu og óska eftir því að pokar verði hirtir.
• Gámur fyrir spilliefni s.s. rafgeyma er staðsettur á gámasvæðinu.
• Mjög mikilvægt er að flokka allt rusl, járnarusl sérstaklega. Einnig verður boðið uppá að fjarlægja járnarusl s.s. bílhræ eða annað sambærilegt. Hafa verður samband við skrifstofu og biðja um að láta fjarlægja járnarusl.

Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina

Þriðjudaga 17-19
Fimmtudaga 17-19
Föstudaga 17-19
Sunnudaga 12-16