Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2013

Vertu til er vorið kallar á þig !

Vorið er komið og grundirnar gróa. Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga er sem fyrr haldin undir slagorðinu ,,Vertu til er vorið kallar á þig!”, en það vísar til þess að allir íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst mánudaginn 13. maí og endar þann 22. maí, þannig að það er rúmur tími til góðra verka.

• Hægt er að losa jarðveg og garðúrgang í jarðvegsgám við Iðndal 9.
• Ruslapokar sem skildir eru eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá þjónustu þurfa. Vinsamlegast gangið vel og snyrtilega frá pokum.
• Íbúar á Vatnsleysuströnd eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu og óska eftir því að pokar verði hirtir.
• Gámur fyrir spilliefni s.s. rafgeyma er staðsettur á gámasvæðinu.
• Mjög mikilvægt er að flokka allt rusl, járnarusl sérstaklega.

Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina:

Þriðjudaga 17-19
Fimmtudaga 17-19
Föstudaga 17-19
Sunnudaga 12-16