Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2012

Vertu til er vorið kallar á þig !

Vorið er komið og grundirnar gróa. Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga er sem fyrr haldin undir slagorðinu ,,Vertu til er vorið kallar á þig!”, en það vísar til þess að allir íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst þriðjudaginn 15. maí og endar þann 26. maí, þannig að það er rúmur tími til góðra verka.

• Hægt er að losa jarðveg og garðúrgang í jarðvegsgám við áhaldahús, Iðndal 9.
• Ruslapokar sem skildir eru eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá    þjónustu þurfa. Vinsamlegast gangið vel og snyrtilega frá pokum.
• Íbúar á Vatnsleysuströnd eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu og óska eftir því að pokar verði hirtir. (skrifstofa sími. 440-6200 )
• Gámur fyrir spilliefni s.s. rafgeyma er staðsettur á gámasvæðinu.
• Mjög mikilvægt er að flokka allt rusl, járnarusl sérstaklega.

Dagana 23. – 25. maí. Verða gámar fyrir brennanlegt sorp og timbur við Áhaldahús, Iðndal 9

Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina
Þri / Fim / Fös    17:00 - 19:00
Sunnud    12:00 – 16:00