Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2010

Vertu til er vorið kallar á þig !

Vorið er komið og grundirnar gróa. Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga er sem fyrr haldin undir slagorðinu ,,Vertu til er vorið kallar á þig!”, en það vísar til þess að allir íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfisvikan hefst mánudaginn 3. maí og endar þann 10. maí, þannig að það er rúmur tími til góðra verka.

Grillveisla í Aragerði laugardaginn 8. maí.
Laugardaginn 8. maí kl. 12 verður kveikt upp í grillinu í Aragerði og boðið upp á pylsur og Svala. Þar geta íbúar hist og skipst á góðum ráðum varðandi hreinsun og umhirðu garða sinna.
Gagnlegar upplýsingar.

• Hægt er að nálgast mold í blómabeðin við Iðndal 9 meðan birgðir endast.
• Hægt er að losa jarðveg og garðúrgang í jarðvegsgám við Iðndal 9.
• Ruslapokar sem skildir eru eftir við lóðarmörk verða teknir hjá þeim sem þá þjónustu þurfa. Vinsamlegast gangið vel og snyrtilega frá pokum.
• Íbúar á Vatnsleysuströnd eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu og óska eftir því að pokar verði hirtir.
• Mánudaginn 10. maí verður vörubíll með krana á ferðinni sem hirðir stærri hluti við lóðamörk. Þá þjónustu þarf að panta á skrifstofu.
• Gámur fyrir spilliefni s.s. rafgeyma er staðsettur á gámasvæðinu.
• Mjög mikilvægt er að flokka allt rusl, járnarusl sérstakega.

Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina
4. maí kl. 17:00-19:00
6. maí kl. 17:00-19:00
7. maí kl. 17:00-19:00
9. maí kl. 12:00-16:00