Umhverfisviðurkenningar 2016

Sveitarfélagið Vogar mun eins og undanfarin ár veita umhverfisviðurkenningar, verða þær afhentar á fjölskyldudögum í ágúst.

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að senda inn tilnefningar um fallega garða, snyrtilegt umhverfi, góða umgengni o.s.frv. á netfang sveitarfélagsins skrifstofa@vogar.is

Umhverfis- og skipulagsnefnd mun taka allar tilnefningar til skoðunar, og í framhaldi af því ákvarða hvaða aðilar hljóta umhverfisviðurkenningar í ár.