Umhverfisviðurkenningar 2011

Hverjir eiga að fá umhverfisviðurkenningu í ár?

Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Voga 2011

Að venju mun bæjarstjórn veita viðurkenningu þeim sem skara fram úr í umhverfismálum í bæjarfélaginu, eftir tillögum frá umhverfis- og skipulagsnefnd.

Viðurkenningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja (jafnt fyrirtæki og félagasamtök sem heimili) og góðrar umgengni um náttúruna.

Ábendingar um húseignir og garða eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að taka til athugunar í ár, eru vel þegnar.

Fulltrúar umhverfis- og skipulagsnefndar munu skoða sig um í bæjarfélaginu snemma í júlí og þurfa ábendingar að hafa borist fyrir 26. júlí.

Þeir sem ekki kæra sig um að garðar þeirra verði skoðaðir eru einnig beðnir um að tilkynna það.

Hafið samband fyrir 26. júlí við undirritaðan, einhvern annan í umhverfis- og skipulagsnefnd, eða við bæjarskrifstofuna, sími 440 6200, skrifstofa@vogar.is  

Hörður Harðarson, formaður umhverfis- og skipulagsnefndar,
hordur.hardarson@vogar.is  sími 424 6791 / 895 0954