Umhverfisviðurkenningar 2006

Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Voga 2006




Á Fjölskyldudaginn 12. ágúst 2006 kl. 14 voru veittar
umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Voga. Fallegum og vel hirtum húsum
og görðum fjölgar stöðugt í Vogum og gróskumikill gróður setur æ meiri svip
á bæinn. Umhverfisnefnd var því vandi á höndum að velja nokkra aðila til að
veita viðurkenningu í ár. Þó eigendur margra fyrirtækja halda eignum sínum í
góðu horfi þótti ekki ástæða til að veita neinu fyrirtæki sérstaka
viðurkenningu í ár.



Eftirtaldir eigendur húseigna í Vogum hljóta umhverfisviðurkenningu í ár:



Jón Mar Guðmundsson og Margrét Ásgeirsdóttir fyrir húseign og garð, að
Aragerði 17. Garðurinn er látlaus og smekklega hannaður með snyrtilegum og
vel hirtum gróðri. Í honum fara vel saman grasflatir, pallar og grjót með
fallegri umgjörð trjáa. Húsinu og garðinum hefur verið haldið við af natni í
fjölda ára og eignin ávalt verið til stakrar prýði.

   

     

    

        



Margrét Aðalsteinsdóttir og Pétur Einarsson að Heiðargerði 4, fyrir
gamalgróinn garð þar sem mikil natni er lögð í viðhald gróðurs og grasflata.
Garðurinn býr yfir fjölbreyttum og gróskumiklum gróðri þar sem blandað er
saman villtum plöntum og skrautblómum á smekklegan hátt.

    

    





Helgi Guðmundsson og Júlía Gunnarsdóttir að Vogagerði 17, fyrir að auðga
umhverfið og mannlífið í Vogum með frumlegum gjörningum sem vekja athygli í
vel hirtum garði. Margvísleg verk þeirra bera vott um mikla sköpunargleði.

    

    

    

    



Íbúar parhúsa Búmanna að Hvammsgötu.

Götumyndin þar sem húsin standa er stílhrein og heildarsvipur góður.
Íbúarnir eru samtaka um að halda lóðum og umhverfi snyrtilegu.
    

    




Eigendur þriggja fyrstnefndu eignanna fengu í viðurkenningarskyni
vatnslitamynd af húsi sínu og garði sem Guðbjörg Theódórsdóttir,
myndlistarkona í Vogum málaði af þessu tilefni.

 Aragerði 17                  

  Vogagerði 17

 Heiðargerði 4