Umhverfisviðurkenningar 2005

Fjölskyldudagurinn var haldinn í Vogum 5. ágúst s.l. Meðal annars á
fjölbreyttri dagskrá voru veittar umhverfisviðurkenningar:

Eftirtalldir hlutu viðurkenningar:



Guðjón Sverrir Agnarsson og Eyrún Antonsdóttir eigendur Aragerðis 16,
hlutu viðurkenningu fyrir glæsilegan og vel við haldinn garð í stöðugri
endurnýjun.  Garðurinn er  ævintýraheimur út af fyrir sig með skemmtilegum
heimagerðum listaverkum úr ýmsum nytjahlutum og fjölbreyttum gróðri.

 



Alice Lid eigandi Vatnsleysu, hlaut viðurkenningu fyrir fallegan, gróinn
garð sem ræktaður er við mjög erfið skilyrði.  Garðinn prýðir fjöldi
harðgerðra plantna og hefur honum verið vel við haldið í áratugi.





Oddgeir Arnar Jónsson og Halldór Viðar Jónsson, eigendur
verktakafyrirtækisins Sparra ehf, og fasteignarfélagsins Bolafóts  hlutu
viðurkenningu fyrir skjótan frágang húsbygginga og góða umgengni á
byggingastað við Brekkugötu 23, Austurgötu 2 og Mýrargötu 1.  Húsin hafa
risið á mjög skömmum tíma og um leið hefur umgengni á lóð verið til
fyrirmyndar.  Fyrir Austurgötu 2 var byggingarleyfi veitt í maí og nú eru
hús og lóð fullfrágengin og til stakrar prýði.



Eigendur hesthúsanna í Fákadal, Vogum, Gunnar Andersen, Róbert Andersen,
Heidi Andersen, Guðný Snæland, Hafsteinn Snæland, Jóhann S Þorbjörnsson,
Ólafur Guðmundsson, Helga Ragnarsdóttir og Guðrún Kristín Ragnarsdóttir
hlutu viðurkenningu fyrir snyrtileg hesthús og umhverfi þeirra, ásamt
uppgræðslu á svæðinu.  Heildarsvipur götunnar er til fyrirmyndar.

Viðurkenningarhafar ásamt sveitarstjóra.