Umhverfisviðurkenningar

Umhverfisnefnd Vatnsleysustrandarhrepps hefur veitt umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2003. Fór nefndin í garða- og umhverfisskoðunarferð þar sem heilmargar fallegar húseignir og garðar ásamt snyrtilegu umhverfi gladdi augu nefndarmanna.Hreppsnefnd bauð verðlaunahöfum til kaffisamsætis í Íþróttamiðstöðinni í gær, þar sem veittar voru viðurkenningar. 

 

Svandís Magnúsdóttir og Lárus K. Lárusson fengu fyrstu verðlaun fyrir garðinn sinn  að Kirkjugerði 11. Í umsögn um garðinn segir: Garðurinn er einstaklega fallegur og gróðursæll, þar sem trjágróður, skrautblóm, matjurtir og heimaræktaðar plöntur njóta sín í góðu skjóli. Garðurinn er fagurlega uppbyggður af margvíslegum efniviði.

Guðrún Lovísa Magnúsdóttir Kirkjugerði 5 fékk verðlaun fyrir snyrtilegan og fallegan garð og umhyggju fyrir umhverfinu í hvívetna.   

Eigendur raðhúsanna við Brekkugötu 9-21 fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi og fallegan heildarsvip.

 

 

Ása Árnadóttir og Guðlaugur Atlason í Austurkoti fengu verðlaun fyrir viðhald og endurbætur á gömlum húsum, Austurkot 1 og Austurkot 2. Húsin sjálf og umhverfi þeirra er til fyrirmyndar.

Hópmynd af verðlaunahöfum tekin í verðlaunagarðinum.