Umhverfisnefnd hrósar íbúum

Umhverfisnefnd hefur nú lokið árlegri yfirreið sinni um sveitarfélagið í leit að snyrtilegum eignum sem skara fram úr.  Auglýst var eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga og fóru nefndarmenn vítt og breitt um sveitarfélagið og skoðuðu eignir sem tilnefndar voru af íbúum ásamt eignum sem nefndin hefur fylgst með undanfarin ár og lofað hafa góðu. 

Margt gott hefur verið gert í sveitarfélaginu sem vert er að veita athygli.  Hér eru garðar og lóðir ásamt húseignum sem árum saman hafa verið til fyrirmyndar.  Við nýbyggingar er einnig vert að veita athygli þeim sem ganga fljótt og vel frá lóðum húsa sinna.  Nokkur gömul hús hafa líka fengið andlitslyftingu svo eftirtektarvert er.

Betur má þó ef duga skal og ef bærinn á að skara fram úr í snyrtimennsku á komandi árum þá þurfa hendur víða að standa fram úr ermum.   Fjöldi húsa og garða er í niðurníðslu og þarfnast verulegra úrbóta. 
Ljóst er að góðir hlutir gerast hægt og er vonin að með áminningum, viðurkenningum og hrósi til íbúa breytist ásýnd bæjarfélagsins okkar til batnaðar.

Umhverfisnefnd vill að þessu sinni hrósa eigendum eftirtaldra húseigna fyrir framtak sitt við að halda umhverfinu snyrtilegu og stuðla þannig að fyrirmyndar bæjarbrag:

Fyrir snyrtilega garða og hús:
Aragerði 18
Austurgata 4
Brekkugata 4
Brekkugata 15
Fagridalur 10
Heiðargerði 28
Hólagata 1c
Hólagata 2b
Hvammsgata 7
Hvammur
Leirdalur 14
Sunnuhlíð, Vatnsleysuströnd
Vogagerði 9 efri hæð
Vogagerði 14
Vogagerði 16 
Vogagerði 33

Fyrir endurbætur á húsum:
Hafnargata 22
Hábær (eldri hlutinn)
Holt (Ægisgata 43)
Kálfatjarnarkirkja
Klöpp (Ægisgata 39)
Minna Knarrarnes

Fyrir endurbætur á lóð/landareign:
Halakot, Vatnsleysuströnd
Hvammsgata 1

Að auki eru þeir sem fengið hafa umhverfisviðurkenningu undanfarin 5 ár, en þeir eru ekki taldir upp hér. Þar fyrir utan er listinn ekki tæmandi og fullvíst að fleiri megi telja til þess hóps sem umhugað er um að halda umhverfinu snyrtilegu.  Allar ábendingar eru vel þegnar nú sem endranær.

Umhverfisnefnd lagði til við bæjarstjórn að fjórar eignir hljóti umhverfisviðurkenningu fyrir árið 2007.  Viðurkenningarnar voru veittar á fjölskyldudaginn 11. ágúst næstkomandi, eins og áður hefur komið fram.

Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga