Umhleypingar

Eftir nokkurra daga stillur og snjó eru umhleypingar framundan. Starfsmenn bæjarins huga að niðurföllum í götum. Eigendur og forráðamenn húsa eru minntir á að hreinsa frá niðurföllum inn á lóðum. Í kvöld og nótt verður nokkur vindur og rigning, hiti yfir frostmarki, snjó leysir því hratt. Það má reikna með glerhálku. Færi verður líklega í verra lagi. Reynt verður af fremsta mætti að liðka fyrir, hreinsa og sandbera eftir því sem veður leyfir.  Er líður á vikuna frystir aftur og svo hlýnar á ný.