UMFÞ ræður nýjan sundþjálfara


Ungmennafélagið Þróttur hefur gert samning við Írisi Eddu Heimisdóttur um að
taka að sér sundþjálfun hjá félaginu. Íris Edda er 22 ára stúlka úr Keflavík,
ættuð frá Sandgerði.



Hún hefur æft sund í um 14 ár og er margfaldur Íslandsmeistari og
Norðurlandameistari. Íris Edda hefur keppt á mörgum mótum fyrir Íslands hönd
og unnið til verðlauna, meðal annars á Evrópumeistaramóti og
Heimsmeistaramóti.  Auk þess hefur hún farið á tvenna Ólympíuleika, í Sydney í
Ástralíu árið 2000 og í Aþenu í Grikklandi árið 2004. Þá hefur hún verið
kjörin íþróttamaður Keflavíkur og íþróttamaður Reykjanesbæjar.



Ungmennafélagið Þróttur er stolt af að fá slíka afreksmanneskju til starfa
fyrir félagið og væntir mikils af samstarfinu.