UMFÞ auglýsir starf framkvæmdastjóra

Ungmennafélagið Þróttur í Vogum á Vatnsleysuströnd auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins. Starfshlutfall er 50%.
Í starfinu felst daglegur rekstur félagsins, samskipti við þjálfara og foreldra auk annarra verkefna sem stjórn félagsins felur framkvæmdastjóra.
Hæfniskröfur.
Æskilegt er að umsækjendur séu liprir í samskiptum, hafi góða þjónustulund, sýni frumkvæði og hafi getu til að vinna sjálfstætt.
Haldgóð menntun og reynsla er skilyrði. Háskólapróf er æskilegt en ekki skilyrði. Góð þekking á tölvum, bókhaldi.
Umsóknir skulu berast stjórn Þróttar á netfangið throttur@throttur.net fyrir 16. júní. Frekari upplýsingar gefur formaður UMFÞ í síma 844 2276 og varaformaður í síma    896 4337.

Stjórn UMFÞ