Tékkneski tónlistarhópurinn Musica ad Gaudium mun halda tónleika ásamt Eydísi Franzdóttur óbóleikara, í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd, fimmtudagskvöldið 30. júlí kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis.
Á tónleikunum verður flutt fjölbreytt tónlist frá endurreisnar- og barokktímabilinu, auk nýrrar tónlistar.
Tékkneski tónlistarhópurinn Musica ad Gaudium hefur sérhæft sig annars vegar í flutningi nútímatónlistar en hins vegar í flutningi tónlistar frá endurreisnar- og barokktímabilinu, er mikilsvirtur á því sviði og hefur hlotið fjölda viðurkenninga.
Musica ad Gaudium skipa: Andrea Brožáková sópran, Alena Tichá semballeikari, Jaromír Tichý flautuleikari og Václav Kapusta fagottleikari.