Tónleikar

Tékkland – Ísland
Tónleikar í Álfagerði í Vogum og standa yfir um klukkustund.
 
Laugardaginn 12. nóvember kl. 16:00 verða tónleikar í Álfagerði í Vogum sem bera yfirskriftina Tékkland-Ísland, en þar er stefnt saman tékkneskri og íslenskri tónlist og tónlistarflytjendum. Svo heppilega vill til að PiKap strengjakvartettinn frá Tékklandi er gestkomandi í Sveitarfélaginu Vogum um þessar mundir vegna tónleikaferðar hérlendis og býður því bæjarbúum og öðrum áhugasömum til tónleika ásamt Eydísi Franzdóttur óbóleikara. Aðgangur er ókeypis og verður boðið uppá kaffi að tónleikum loknum.
 
PiKap strengjakvartettinn kemur frá vestur Tékklandi; frá Pilzen og Karlovy Vary (Karlsbad). Kvartettinn hefur komið víða fram, s.s. á tónlistarhátíðum í Frakklandi, Englandi, Þýskalandi, Ítalíu, Króatíu og Tékklandi, en einnig á Íslandi. Þau léku á Tíbrár-tónleikum í Salnum árið 2004, við mjög góðar undirtektir auk þess að leika víða um land og er því tilhlökkunarefni að fá hópinn aftur. Meðlimir kvartettsins eru virk í tónlistarlífinu í Tékklandi þar sem þau spila í Sinfóníuhljómsveitinni í Karlovy Vary og Óperuhljómsveitinni í Pilzen auk þess að vera virk í kammertónlist, stunda kennslu og hafa leikið þjóðlagatónlist frá blautu barnsbeini.
 
Á efnisskrá verður hluti efnisskrár sem hópurinn mun leika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu sunnudaginn 13. nóvember: Strengjakvartett eftir Hildigunni Rúnarsdóttur sem hún samdi fyrir PiKap kvartettinn, ásamt kvartettum eftir Smetana, Sylvie Bodorová og Jaroslav Krcek og Divertimento d’Amore eftir tékkneska ungtónskáldið Daniel Pitra þar sem Eydís Franzdóttir leikur á ástaróbó með PiKap kvartettinum. 
 
Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi strengjakvartettinn nr. 1 fyrir PiKap strengjakvartettinn 2011-2012 og frumfluttu þau verkið í Tékklandi árið 2012. Verkið heyrist nú í fyrsta sinn á Íslandi í upprunalegri mynd. Strengjakvartett nr. 2 eftir hið kunna tékkneska tónskáld Bedrich Smetana verður einnig á dagskrá og er virkilega gaman að heyra tékkneska flytjendur leika tónlist hans eins og þeim er í blóð borið, af hita og blóðheitri tilfinningu. Við fáum einnig að heyra nýrri strengjakvartetta: Strengjakvartett nr. 4 eftir Sylvie Bodorovu (1954) sem stundaði m.a. nám hjá Donatoni á Ítalíu og Ton de Leeuw í Amsterdam eins og sum okkar fremstu tónskálda og einnig glænýjan strengjakvartett eftir Jaroslav Krcek sem er best þekktur sem stjórnandi hinnar kunnu kammersveitar Musica Bohemica í Prag. Sá kvartett er saminn sérstaklega fyrir PiKap og verður frumfluttur á 15:15 tónleikunum. Síðast en ekki síst er á efnisskrá Divertimento d’Amore eftir Daniel Pitra, 22 ára tékkneskt tónskáld sem hefur m.a. stundað nám við Konservatoríið í Prag. Verkið var samið fyrir Eydísi, ástaróbóið og PiKap strengjakvartettinn 2012 og flutt það ár bæði í Tékklandi og á tónlistarhátíðinni Zeit für Neue Musik – í Bayreuth í Þýskalandi.