Tímabundið starf laust til umsóknar

Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar starf tómstundaleiðbeinanda II frístunda- og menningarfulltrúa.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem snertir margar hliðar frístunda- og menningarstarfs. Unnið er með málefni eldri borgara, barna og ungmenna og íþróttamiðstöðvar auk menningarmála. Æskilegur aldur er 25 ára og eldri.

Meðal verkefna:

·         Almenn skrifstofustörf

·         Samhæfing viðburða á vegum frístunda- og menningarfulltrúa

·         Umsjón með skipulagi og þátttaka í starfi félagsmiðstöðvar

·         Umsjón með sumarstarfi félagsmiðstöðvar

·         Fréttabréf og viðburðadagatal

 

Hæfni:

·         Færni í mannlegum samskiptum

·         Menntun og/eða reynsla af sambærilegum störfum

·         Reynsla af skrifstofustörfum

·         Gott tölvulæsi

·         Frumkvæði

·         Skipulagshæfileikar

·         Sveigjanleiki

·         Hæfni til að vinna sjálfstætt

 

 

Um tímabundið starf er að ræða, til loka september, 2011. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Upplýsingar um starfið gefur Stefán Arinbjarnarson frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440 6225 eða í netfangi stefan@vogar.is

Laun fara eftir samningum Starfsmannafélags Suðurnesja og LN.

Umsóknafrestur er til og með 7. nóvember, 2010. Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is