Tímabundið starf í íþróttamiðstöð

Óskað er eftir að ráða starfsmann til tímabundinna afleysinga í íþróttamiðstöð.

Um er að ræða þrif, gæslu í kvennaklefa, eftirlit með sundgestum og annað sem forstöðumaður felur viðkomandi.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf eftir samkomulagi.

Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar en einnig  er hægt að sækja um með tölvupósti á netfangið stefan@vogar.is 

Íþróttamiðstöð er reyklaus vinnustaður.

Umsóknarfrestur er til og með 23. mars 2012.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúi Voga, í síma 440-6225 eða með tölvupósti á netfangið stefan@vogar.is