Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Voga 2015

Óskum eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna 2015

Að venju mun bæjarstjórn veita viðurkenningu þeim sem skara fram úr í umhverfismálum í bæjarfélaginu, eftir tillögum frá umhverfis- og skipulagsnefnd.

Viðurkenningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja (jafnt fyrirtæki og félagasamtök sem heimili) og góðrar umgengni um náttúruna.

Ábendingar um húseignir og garða eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að taka til athugunar í ár, eru vel þegnar.

Fulltrúar umhverfis- og skipulagsnefndar munu skoða sig um í bæjarfélaginu á næstu dögum og þurfa ábendingar að hafa borist fyrir kl. 15.00, þriðjudaginn 11. ágúst nk.

Þeir sem ekki kæra sig um að garðar þeirra verði skoðaðir eru einnig beðnir um að tilkynna það.

Vinsamlegast sendið ábendingar á skrifstofa@vogar.is eða hringið í bæjarskrifstofuna í síma 440-6200.

 

Áshildur Linnet, formaður Umhverfis- og skipulagsnefndar