Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Voga 2007

Að venju mun bæjarstjórn veita viðurkenningu þeim sem skara fram úr í umhverfismálum í bæjarfélaginu, eftir tillögum frá umhverfisnefnd.

Viðurkenningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja (jafnt fyrirtæki og félagasamtök sem heimili) og góðrar umgengni um náttúruna.

Ábendingar um húseignir og garða eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að umhverfisnefnd taki til athugunar í ár eru vel þegnar.

Fulltrúar nefndarinnar munu skoða sig um í bæjarfélaginu í byrjun júlí og þurfa ábendingar að hafa borist fyrir þann tíma.  Þeir sem ekki kæra sig um að garðar þeirra verði skoðaðir eru einnig beðnir um að tilkynna það. 

Hafið samband fyrir júnílok við undirritaðan, aðra í umhverfisnefnd eða bæjarskrifstofuna, sími 424 6660,  skrifstofa@vogar.is

Þorvaldur Örn Árnason, form. umhverfisnefndar
valdurorn@simnet.is  sími 424 6841 / 895 6841