Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2009.
Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í Vogum. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera 12 ára á árinu eða eldri. Allar tillögur skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar. Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt á árshátíð Stóru- Vogaskóla þann
25.mars næst komandi.
Tilnefningar sendist á jonaosk@vogar.is eða í lokuðu umslagi í íþrótta – og félagsmiðstöð í síðasta lagi 1.mars 2010.
Frístunda – og menningarnefnd
og
Sveitarfélagið Vogar