Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og tillaga að deiliskipulagi, vegna athafnasvæðis við Vogavík.

AUGLÝSING
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028
og tillaga að deiliskipulagi, vegna athafnasvæðis við Vogavík.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/static/files/import//2010 og deiliskipulag samkvæmt 41. gr. sömu laga.

Breyting á aðalskipulagi felst í eftirfarandi:
Mörk athafnasvæðis A-3 breytast og stækkar athafnasvæðið úr 11,0 ha í 13,0. Athafnasvæðið stækkar til norðausturs, norður fyrir aðkomuveg að svæðinu, inn á svæði sem er innan lóðar fiskeldisfyrirtækisins Stofnfisks sem er með starfsemi sína á svæðinu. Stækkun til norðurs er um 4,0 ha inn á svæði sem fyrir breytingu er skilgreint sem óbyggt svæði. Sú breyting er einnig gerð á mörkum afhafnasvæðis að ekki verður lengur gert ráð fyrir athafnasvæði meðfram ströndinni vestan við skilgreindan göngustíg í aðalskipulagi. Umrætt svæði er innan lóðar Stofnfisks en ekki gert ráð fyrir að fyrirtækið verði með starfsemi sína vestan göngustígsins og því verður svæðið skilgreint sem óbyggt svæði. Stærð þess svæðis sem breytist úr athafnasvæði í óbyggt svæði er um 2,0 ha.
Samhliða breyttri landnotkun er mörkun hverfisverndarsvæðis H-1 einnig breytt við Vogavík. Hverfisvernd (H-1) er aflétt af því 4,0 ha svæði sem verður skilgreint sem athafnasvæði innan lóðar Stofnfisks, norðan aðkomuvegar, en hverfisvernd (H-1) verður skilgreind á því 2,0 ha svæði meðfram ströndinni sem breytist úr athafnasvæði í óbyggð svæði. Þá er legu göngustígs, sem gert er ráð fyrir á núverandi mörkum athafnasvæðis A-3 og hverfisverndarsvæðis H-1 breytt og mun stígurinn eftir breytingu liggja norðan stækkaðs athafnasvæðis. Áfram er gert ráð fyrir göngustíg meðfram ströndinni.

Deiliskipulag, afmörkun og stærð:
Svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkast af lóðamörkum lóða Stofnfisks innan athafnasvæðis A-3 og nær það út í sjó. Skipulagssvæðið er alls um 17 ha. að flatarmáli.

Tillögurnar eru settar fram á uppdráttum og greinargerð og vísast til þeirra um nánari upplýsingar.

Með tillögu að breytingu á aðalskipulagi er birt bréf Skipulagsstofnunar vegna athugasemdar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja varðandi vatnsból sveitarfélagsins.

Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með mánudeginum 26. janúar 2015 til og með mánudagsins 9. mars 2015 og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vef Sveitarfélagsins Voga,  www.vogar.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en mánudaginn 9. mars 2015.

Vogum, 26. janúar 2015.
F.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

 

Aðalskipulag - tillaga - breyting
Deiliskipulag - tillaga - uppdráttur
Deilskipulag – tillaga – greinargerð og umhverfisskýrsla
Fornleifaskýrsla – deiliskráning
Bréf Skipulagsstofnunar