Tilkynning til fasteignaeigenda um álagningu ársins 2014

 

Greiðsluseðlar frá Sveitarfélaginu Vogar  verða framvegis rafrænir. Greiðsluseðlarnir munu birtast á vefnum: island.is.  Á mínum síðum á http://island.is hefur fólk aðgang að ýmsum upplýsingum, þar á meðal álagningarseðlum fasteignagjalda.
Til að skrá sig inn þarf að auðkenna sig með íslykli frá island.is, eða rafrænum skilríkum.

Sveitarfélagið Vogar mun þó senda einstaklingum 67 ára og eldri og fyrirtækjum greiðsluseðla í bréfapósti.

 

Við bendum á að greiða má boðgreiðslur með kreditkortum. Ef óskað er eftir að greiða með kreditkortum þarf að hafa samband við bæjarskrifstofu í síma: 440-6200