Tilkynning frá Vinnumálastofnun

Til fólks sem búsett er í Vogum og er á atvinnuleysisskrá.

Frá og með 15. febrúar 2010 verður fulltrúi frá Vinnumálastofnun á Suðurnesjum staðsettur á bæjarskrifstofunni í Vogum 15. hvers mánaðar kl. 9:30-10:30. Ef 15. ber upp á helgi eða frídag færist viðveran fram til næsta virka dags.

Ef fólk er með fyrirspurnir varðandi atvinnuleysisbætur þá er hægt að spara sér ferð til Keflavíkur með því að hitta fulltrúa VMST á þessum tíma í Vogum.

Starfsfólk Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum