Tilkynning frá Póstinum

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna sem upp hafa komið hjá samstarfsaðila Póstsins á Vogum á Vatnsleysuströnd þá verður töf á þjónustu Póstsins á svæðinu.

Verið er að vinna að ráðstöfunum til að koma pósti til heimila og fyrirtækja og mun Pósturinn sjá til þess að það leysist á næstu dögum.  Íbúar mega því búast við að einhver töf verði á útburði.

Ef fólk þarf nauðsynlega að nálgast póst sem það á von á, á næstu dögum, þá er hægt að nálgast póst í pósthúsinu í Keflavík. Það er þá að hluta til póstur sem hefði átt að berast til heimila og fyrirtækja í dag 25.janúar og á morgun 26.janúar. Opnunartími á pósthúsinu í Keflavík er frá kl. 9-16.30

Fyrir allar nánari upplýsingar má hafa samband við þjónustuver Póstsins í síma 580 1200.