Tilkynning frá bókasafninu

Tekinn hefur verið saman listi af bókum, greinum o.fl. sem fjalla um sveitarfélagið Voga, fyrr Vatnsleysustrandarhrepp. Þennan lista má sjá neðst á síðu bókasafnsins. Smellt er á hlekk hér til hægri sem stendur á bókasafn og farið svo neðst á síðuna þar sem stendur: Hér má sjá lista af bókum og greinum sem fjalla um sveitarfélagið.

Þeir sem vita um fleiri heimildir sem fjalla um sveitarfélagið mega gjarnan hafa samband við bókavörð. Netfangið er bokasafn@vogar.is og símanúmer bókasafnsins er 4406289.