Þróttur og Landsbankinn framlengja samning

Ungmennafélagið Þróttur  og Landsbankinn hafa framlengt samning sinn til eins árs. Líkt og síðustu ár er Landsbankinn einn af stærstu samstarfsaðilum félagsins að sveitarfélaginu undanskildu. Landsbankinn hefur lagt áherslu á að vera í góðum tengslum við íþróttahreyfinguna á Suðurnesjunum. Með endurnýjun samningsins vill Landsbankinn sýna í verki áhuga sinn og stuðning við æskulýðs- og íþróttamál og um leið leggja áherslu á forvarnarþátt þess starfs. Einnig fellur samningurinn vel að markmiðum Landsbankans hvað varðar stuðning við íþrótta- og forvarnarstarfsemi með sérstakri áherslu á barna- og unglingastarf.