Þróttur í 8 liða úrslit

Búið er að draga í 8-liða úrslitum í bikarkeppni karla í handknattleik. Þróttur Vogum var í pottinum og drógust þeir gegn 1. deildar liði Víkings.
Þróttur hefur þegar slegið út 1. deildarlið Þróttar úr Reykjavík í 32-liða úrslitum og svo B-lið Víkings í 16-liða úrslitum.
Þjálfari Þróttara er enginn annar en Sigurður Sveinsson, fyrrum stórskytta með íslenska landsliðinu, og hvetur hann alla bæjarbúa til að sýna lit (appelsínugulan) og mæta á leikinn og styðja sína menn!

Leikið verður mánudaginn 3. desember kl. 20:00 í íþróttahúsinu að Strandgötu, Hafnarfirði.

Liðin sem dróust saman í 8 liða úrslitunum eru eftirfarandi:
Afturelding 2 - Akureyri,
Þróttur Vogum - Víkingur,
Valur - Haukar,
Fram - Stjarnan.

Mynd:
Úr leik UMF Þróttar og Víkings B í 16 liða úrslitum.