Þróttarar heimsækja Grindavík í bikarnum

Þróttarar mæta liði Grindavíkur  mánudagskvöldið 18. maí í bikarkeppni KSÍ. Leikurinn byrjar klukkan 19 og verður á Grindavíkurvelli. Þróttarar ætla bjóða uppá andlitsmálningu fyrir leik og einnig verður rútuferð í boði. Mikil og góð stemmning er fyrir leiknum og eru stuðningsmenn liðanna hvattir til að vera tímanlega á völlinn til að forðast biðraðir.

Fyrir leikinn býður bæjarstjórn Grindavíkur fulltrúum bæjarstjórnar Voga til móttöku, enda ekki á hverjum degi sem nágrannaslagur er í knattspyrnunni.