Þróttarar hefja leik í úrslitakeppni 4. deildar.

Þróttarar taka á móti liði KFG í 8- liða úrslitum.

Fyrri leikurinn fer fram á Vogabæjarvelli á morgun laugardaginn 30. ágúst klukkan 14.

Seinni leikur liðanna fer fram þriðjudaginn 2. september í Garðabæ og hefst sá leikur klukkan 17:30.

Er þetta í fyrsta skipti sem Þróttarar komast í úrslitakeppnina en þeir hafa verið nokkrum sinnum nálægt því áður.

Þjálfari liðsins er Þorsteinn Gunnarsson.

Hér má lesa aðsent bréf frá leikmönnum Þróttar sem birtist á vef Víkurfrétta þann 28.8.2014