Þróttarar fengu skell ....

Þróttarar mættu liði KFG á mánudagskvöldið í toppslag A- Riðils 4. deildar. Eftir mikið jafnræði í fyrri hálfleik þá skoruðu Garðbæingar í lok fyrri hálfleiks. Seinni hálfleikur var eins og okkar menn mættu ekki til leiks og allar flóðgáttir opnuðust. Þegar upp var staðið þá hafði KFG bætt við fjórum mörkum og okkar menn sáu aldrei til sólar. Lokastaðan 5-0 fyrir KFG. Margir stuðningsmenn Þróttar mættu í Garðabæinn og settu mikinn svip sinn á leikinn.

Næsti leikur Þróttara verður þriðjudagskvöldið 30. júlí á heimavelli.

Höfundur: Marteinn Ægisson

Myndina tók Þorsteinn Ólafsson