Þróttarar færa út kvíarnar

Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá Þrótti í Íþróttamiðstöðinni Vogum  þriðjudaginn 21. apríl kl. 18:00.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt Vogum og hefst kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem verða 15 ára á árinu og eldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is eða marteinn@throttur.net