ÞRETTÁNDINN

Þrettándagleði föstudaginn 6. janúar

Þrettándagleðin hefst upp í félagsmiðstöð þar sem andlitsmálun verður í boði fyrir krakkana milli klukkan 17:00 og 17:45. Kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar hefst við félagsmiðstöðina klukkan 18:00. Kyndlar verða í boði fyrir gönguna.
Gengið verður niður Hafnargötuna, í átt að skólanum og endað hjá brennunni við skólann.
Brennan er í boði Lionsklúbbsins Keilis.
Eftir brennuna höldum við í Tjarnarsalinn, þar verður mikil gleði, sungið og dansað.
Allir 12 ára og yngri fá glaðning.
Nú er um að gera að finna gömlu búningana sína og skella sér í göngu og hafa gaman saman.

Flugeldamarkaður björgunarsveitarinnar Skyggnis verður opinn á þrettándanum frá kl 13:00-17:00 og verður mjög góður afsláttur af flugeldum hjá Skyggnismönnum.

Sveitarfélagið Vogar, Lionsklúbburinn Keilir og félagsmiðstöðin Boran.