Þrettándinn

Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt þann 6.janúar í félagsmiðstöðinni kl 16:00.

Boðið verður uppá andlitsmálingu kl 17:00-17:50 í félagsmiðstöðinni.

Kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar,  hefst við félagsmiðstöð kl 18:00. Flugeldasýning á vegum björgunarsveitarinnar Skyggnis verður við brennuna. Brennan er í boði Lions.

Eftir flugeldasýninguna höldum við í Tjarnarsalinn, þar sem verður smá gleði, sungið og dansað.