Þrettándagleði og útnefning á íþróttamanni Voga, laugardaginn 10. janúar.

Dagskrá þrettándagleði 10. janúar 2015.
Kl. 15:30 Útnefning á íþróttamanni Voga 2014 í Álfagerði. Allir velkomnir.
Kl. 16:00 Andlitsmálun í félagsmiðstöð fyrir alla krakka.
Kl. 17:00 Kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar, hefst við félagsmiðstöð.
Gengið verður niður Hafnargötu, inn á göngustíg í átt að skólanum og endað hjá brennunni við skólann. Brennan er í boði og umsjá Lions.
Flugeldasýning á vegum björgunarsveitarinnar Skyggnis verður við brennuna.

Eftir brennuna höldum við í Tjarnarsalinn, þar sem verður smá gleði, sungið og dansað.

Allir 12 ára og yngri fá glaðning.
Veitt verða verðlaun fyrir nokkra skemmtilega búninga.
Nú er um að gera  að finna gömlu búningana sína og skella sér í göngu og hafa gaman saman.