Þrettándagleði í kvöld aflýst vegna mjög slæmrar veðurspár

Þar sem veðurspáin er mjög slæm í kvöld þá hefur sú ákvörðun verið tekin að aflýsa fyrirhugaðri þrettándagleði, sem fara átti fram í dag kl 18:00.
Spáin fyrir laugardaginn 10. janúar er hins vega mjög góð og verður þrettándagleðin haldin þá, kl 17:00.

Þá lítur dagskráin svona út:
Kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar, hefst við félagsmiðstöð kl 17:00. Gengið verður niður Hafnargötuna, inn á göngustíg í átt að skólanum og endað hjá brennunni við skólann. Brennan er í boði Lions.

Eftir brennuna höldum við í Tjarnarsalinn, þar sem verður smá gleði, sungið og dansað.

Allir 12 ára og yngri fá glaðning.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjá skemmtilega búninga.
Nú er um að gera  að finna gömlu búningana sína og skella sér í göngu og hafa gaman saman.

Boðið verður uppá andlitsmálun fyrir yngri krakkana í félagsmiðstöðinni frá klukkan 16:00-16:50

OPIÐ - AFSLÁTTUR
Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Skyggnis
verður opinn mánudag 5.1. og þriðjudag 6.1. frá kl 17:00-20:00

Lionsklúbburinn Keilir, Kvenfélagið Fjóla, Ungmennafélagið Þróttur, Félagsmiðstöð
og Sveitarfélagið Vogar

Nánari upplýsingar fást í félagsmiðstöðinni í síma 440-6224