Þrettándagleði

Þrettándagleði Sveitarfélagsins Voga 2009

Þriðjudaginn 6. janúar  kl. 18:00

Kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar,  hefst við félagsmiðstöð.  Gengið verður niður Hafnargötuna, inn Vogagerðið og alveg út að Álfagerði, verður síðan gengið Ástarbrautina að brennunni við skólann.  Kveikt verður í bálkestinum á áfangastað þar sem verður þar sungið og trallað.  Flugeldasýning á vegum björgunarsveitarinnar Skyggnis verður við brennuna.

Eftir flugeldasýninguna höldum við í Tjarnarsalinn, þar sem verður smá gleði, sungið og dansað.

Allir 12 ára og yngri fá glaðning.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjá skemmtilega búninga.
Nú er um að gera  að finna gömlu búningana sína og skella sér í göngu og hafa gaman saman.

Foreldrafélag 7. bekkjar mun vera með kaffisölu í Tjarnarsalnum á góðu verði.

Boðið verður uppá andlitsmálun fyrir yngri krakkana í félagsmiðstöðinni frá klukkan 17:00-17:58


OPIÐ - AFSLÁTTUR
Flugeldamarkaður björgunarsveitarinnar Skyggnis verður opinn á sunnudeginum 4. janúar frá 13:00-17:00 og síðan aftur á þrettándanum
frá 13:00-17:00.

Björgunarsveitin Skyggnir,  Lionsklúbburinn Keilir, Kvenfélagið Fjóla, Ungmennafélagið Þróttur, Félagsmiðstöð og Sveitarfélagið Vogar

Nánari upplýsingar fást í félagsmiðstöðinni í síma 440-6224