Þorrablót leikskólans verður föstudaginn 25. janúar nk.

Í tilefni dagsins er eldri borgurum sérstaklega boðið í heimsókn til okkar kl. 9:30—11:00.

Kór leikskólans mun flytja nokkur lög fyrir gestina og svo er ætlunin að hafa gaman saman. Að sjálfsögðu fá svo allir að smakka á hefðbundnum þorramat.

Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Bestu kveðjur frá börnum og starfsfólki á Suðurvöllum.