Þorrablót leikskólans

Þorrablót leikskólans verður föstudaginn 31. janúar.
 
Í tilefni dagsins er eldri borgurum sérstaklega boðið í heimsókn til okkar kl. 9:30—11:00.

Kór leikskólans mun flytja nokkur lög fyrir gestina og að sjálfsögðu fá svo allir að smakka á hefðbundnum þorramat.

Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Bestu kveðjur frá börnum og starfsfólki á Suðurvöllum.