Þorrablót Kvenfélagsins Fjólu laugardagskvöldið 6. febrúar

Þorrablót Kvenfélagsins Fjólu verður næsta laugardag 6. febrúar í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla.

Húsið opnar kl 19:00 og borðhald hefst kl 19:30.
Boðið verður upp á þorramat sem og pottrétt fyrir þá sem ekki þora í súrmatinn.

Veislustjórar kvöldsins verða hinir stórskemmtilegu Hraðfréttamenn.

Ingó og Veðurguðirnir munu spila fyrir dansi til kl 03:00.

Stór skemmtilegt kvöld sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Lukkuhjólið góða verður á sínum stað, sem og hið frábæra happdrætti.

Miðaverð er 7500 kr. Hægt er að panta miða hjá Helgu Rut í síma 844-8965 eftir kl 17:00 á daginn.

Hægt verður að sækja og greiða fyrir miðana þriðjudaginn 2. febrúar frá kl 19:30-20:30 í félagsmiðstöðinni.

Þorrablótsnefndin