Þorrablót Kvenfélagsins Fjólu 2. febrúar 2013

Hið árlega þorrablót Kvenfélagsins Fjólu verður haldið 2. febrúar 2013 í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla.
Ekki missa af okkar frábæra Þorrablóti.

Dagskrá:
Húsið opnar kl. 19:30.
Matur byrjar kl. 20 – dýrindis þorramatur frá Múlakaffi.
Veislustjóri: Gísli Einarsson úr Landanum.
Heimatilbúin skemmtiatriði ásamt okkar frábæra happdrætti.
Hljómsveitin Bógus heldur uppi stuðinu fram eftir nóttu.

Miðaverð: 6.000 kr
Miða-og borðapantanir í síma Guðrún 898-6534 og Elsa Lára 822-3572

Nefndin