Þjóðaratkvæðagreiðsla 9. apríl 2011

KJÖRFUNDUR

vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í
Sveitarfélaginu Vogum
9. apríl 2011


Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00

Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli


Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga frá og með miðvikudeginum 30. mars fram að kjördegi.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.



Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga,

Hilmar Egill Sveinbjörnsson
Jón Ingi Baldvinsson
Þórdís Símonardóttir