Þjálfarar óskast

Ungmennafélagið Þróttur auglýsir eftir knattspyrnuþjálfurum
og yfirþjálfara fyrir yngri flokka, 3.-7. fl. kk/kvk.

Yfirþjálfari
Um er að ræða almenna þjálfun og yfirumsjón með þjálfara- og mótamálum.

Þjálfun yngri flokka
Um er að ræða umsjón með æfingum og þátttöku í mótum.

Æskilegt er að umsækjendur búi yfir menntun og/eða reynslu af knattspyrnuþjálfun, sýni frumkvæði og sjálfstæði, öguð vinnubrögð og búi yfir góðum samskiptahæfileikum.

Öllum umsóknum verður svarað en áhugasamir geta sent inn umsóknir eða fyrirspurnir á netfangið throttur@throttur.net fyrir 1. sept. 2010. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og reynslu.


Stjórn UMFÞ