Þeir sem eiga leið um Vogahöfn eru beðnir að sýna aðgætni og varúð !

Í óverðrinu sem gekk yfir landið að morgni miðvikudagsins 21. febrúar 2018 gaf landgangur sig við flotbryggju í Vogahöfn. Sem betur fer er unnt að lagfæra landganginn og hvorki bátar né flotbryggjan voru í hættu. Reiknað er með að viðgerð hefjist nú þegar, og gert ráð fyrir að búið verði að koma bryggjunni fyrir á sínum stað ásamt því að tengja landganginn að nýju. Þeir sem eiga leið um Vogahöfn eru beðnir að sýna aðgætni og varúð, þar til viðgerð hefur farið fram.