Það styttist óðum í sumarstarfið :)

Leikjanámskeið fyrir krakka fædd 2003-2006 byrja 4. júní. Skráning er hafin í félagsmiðstöðinni og hægt er að skoða dagskrána við skráningu.
Greiða þarf námskeiðsgjald við skráingu. 5 daga námskeið kostar 6800 kr og er hádegismatur innifalinn.

Einnig gefst krökkum á aldrinum 8-12 ára að smíða sér kofa 2.-13. júlí. Kostnaður við hvern kofa og lóð er 11.550.
Tekið skal fram að mögulegt er að vera nokkrir saman með einn kofa og deilist þá kostnaður samkvæmt fjölda.
 
Nánari upplýsingar í félagsmiðstöð í síma 440-6224.

Sumarkveðja, Jóna Ósk :)