Tendrun ljósa á jólatré

Sunnudaginn 7. desember (annan sunnudag í aðventu) verður kveikt á jólatrénu okkar í Aragerði kl. 18:15.  Þar munum við æfa jólalögin saman og jafnvel dansa í kringum jólatréð.  Heyrst hefur að jólasveinninn verði á ferðinni um Suðurnesin þennan dag….. og hver veit nema hann kíki aðeins á okkur.  Og hugsanlega mun hann eiga einhvern glaðning til að dreifa.

Aðventumessa verður í Kálfatjarnarkirkju þennan sama dag og hefst hún kl. 17:00. Foreldrafélag leikskólans mun vera með kaffiveitingar í félagsmiðstöðinni frá klukkan 15:00-18:00. Kaffið kostar 1.000 kr. fyrir fullorðna, 300 k.r fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára og frítt fyrir leikskólabörnin.

Frístunda – og menningarnefnd